Það glitti í andlit mitt á skjánum í gær, var þarna á ljósmynd sem tekin vara í ammæli Ham. Það var afskaplega interessant kvöld man ég. Ammælið var haldið í kópavogi á búllubar. Nema hvað að þegar klukkan var 3 og ég fattaði að barinn var búin að loka ( einsog tíðkaðist þá), að þá bilaðist ég alveg, enda var tilhugsuninm um að fá ekki meira að drekka óbærileg. Sem er spaugilegt þar sem ég var býsna ölvuð, já kannksi ofurölvi bara! Í sama mund þá sé ég að góðvinur okkar hjóna situr og er að borða pizzu við eitt borðið, herra Proppé sat á móti honum. Þegar ég kom að borðinu og ætlaði að hrifsa til mín pizzusneið þá brást vinur okkar ókvæða við ( enda ofuölvi líka blessunin) og kallaði mig öllum illum nöfnum, aðalega þó drusla og tík. Ég mátti ekki við þessu og tók stóra bjórkrús (svona þykka með haldi, ekki glas) og henti henni í pizzueigandan. Ekki tókst þetta betur en svo að krúsin lenti á herra Proppé og mátti engu muna að höfuðhögg hlytist af, en ég held að hann hafi borið hönd fyrir og þessvegna brotnaði úrið hanns. Þetta ofbeldi af minni hálfi orsakaði almennan uppsteyt og læti, og var mér á endanum hent út á götu öskrandi og gargandi og sparkandi. Þá varnú gaman að lifa

0 ávörp:
Sendu inn athugasemd