Verst að við sáum enga tóneika, ekkert rokk.. ohh well.. Sit og er að bíða eftir að einkur smápeningur ruslist inná reikninginn minn svo að ég geti ferið með Hörð í klippingu. Hann er með mjög sérkennilega tilfinningu fyrir hárinu sínu. Hann finnur það vaxa og þegar það er ekki alveg stutt lengur kvelst hann bókstaflega, einsog hann finni það liggja á höfðinu og stingast út um allt. Hann öskar líka þegar er verið að þurka á honum hárið, já og sjálf klippingin er alltaf einstakt kvalræði fyrir hann. Þetta er svona partur af raunveruleika einstaklings með heilaboð og starfsemi sem er eikkvað öðruvísi en okkar hinna flestra. He is aware of his hair

0 ávörp:
Sendu inn athugasemd