15.8.03

Ákvörðun í kjölfar bloggpirrs. Ég er alveg til í þessa blogg athygli hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð, og er svona þegar upp er staðið ekkert sérstaklega hörundsár. En ég ætla ekki að blogga að ráði um börnin héðan af. Hef oft verið að huxa um þetta.. börn og fjölmiðlar og fleira í þeim dúr. Þau hafa ekkert haft um það að segja að ég sé að skrifa um þau og hafa ekki fengið að ráða því. Það er ekki víst að þau sem fullvaxið fólk hafi neitt gaman af því að til séu upplýsingar um þeirra hagi sem börn/unglingar. ekki er víst að þau vilji neina athygli út á að vera mín börn eða pabba síns. þau eru of ung til að vita það í dag hvað sé fyrir bestu og ég verð að taka ábyrgðina. Úlfur er orðin nógu gamall til að velja sjálfur og ef hann vill halda áfram með sitt blogg er það náttla bara gaman.